Hér fyrir neðan finnur þú nokkrar af þeim fjölmörgu ástæðum af hverju þú ættir að velja Masson vefhýsingar fram yfir aðra. Skoðaðu verðsamanburðinn hér
Allir okkar vefþjónar eru staðsettir á Íslandi í hita- og aðgangsstýrðum kerfisrýmum og öll öryggisskilyrði eru til fyrirmynda.
Það er ekki nóg með það að við bjóðum uppá úrvals vefhýsingar fyrir einstaklinga og fyrirtæki heldur eru verðin frá aðeins 990,- krónum á mánuði.
Ef þú greiðir með kreditkorti er aðgangurinn gerður virkur samstundis og getur þú strax hafist handa við að setja inn efni og unnið með vefinn. Einnig er hægt að greiða með millifærslu og þurfa þá starfsmenn Masson ehf að samþykkja aðganginn.
Allir viðskiptavinir hafa aðgang að þjónustuborði þar sem auðvelt er að senda inn þjónustubeiðnir og aðrar fyrirspurnir. Þjónustuborðið er vaktað 24 tíma sólahrings alla daga ársins og er almennur viðbragðstími hjá kerfisstjórum innan við 3 klst.
Fullkomið Plesk stjórnborð fylgir með öllum áskriftum, þar geta stjórnendur stofnað netföng, fylgst með tölfræði, haft umsjón með MySQL gagnagrunni og stofnað undirlén svo fátt sé nefnt.
Allur póstur fer í gegnum svokallaða rusl- og víruspóstsíu sem kemur í veg fyrir það að innhólfið hjá þér fyllist af ruslpósti og kemur í veg fyrir að skilaboð sem innihalda vírusa berist þér.
Allir vefþjónar eru með yfir 99.9% uppitíma á ársgrundvelli og er því vefsvæðið þitt ávallt aðgengilegt fyrir þig, þína netverja og/eða viðskiptavini.
Allir viðskiptavinir hafa aðgang að einstaklega fullkomnum vefpósti með dagatali þar sem hægt er að halda utan um netfangaskrá, tengiliði, viðburði ofl.
Einstaklega auðvelt er fyrir viðskiptavini að breyta um hýsingar pakka, þeir geta bæði minnkað við eða stækkað hýsinguna með aðeins einum hnapp á þjónustuborði.