Allir okkar vefþjónar eru staðsettir á Íslandi í hita- og aðgangsstýrðum kerfisrýmum og öll öryggisskilyrði eru til fyrirmynda.
Ef þú greiðir með kreditkorti er aðgangurinn gerður virkur samstundis og getur þú strax hafist handa við að setja inn efni og unnið með vefinn. Einnig er hægt að greiða með millifærslu og þurfa þá starfsmenn Masson ehf að samþykkja aðganginn.
Fullkomið Plesk stjórnborð fylgir með öllum áskriftum, þar geta stjórnendur stofnað netföng, fylgst með tölfræði, haft umsjón með MySQL gagnagrunni og stofnað undirlén svo fátt sé nefnt.
Allir viðskiptavinir hafa aðgang að þjónustuborði þar sem auðvelt er að senda inn þjónustubeiðnir og aðrar fyrirspurnir. Þjónustuborðið er vaktað 24 tíma sólahrings alla daga ársins og er almennur viðbragðstími hjá kerfisstjórum innan við 3 klst.